Beint á leiðarkerfi vefsins
Aftur á forsíðu vefs
Odinn

Varðskipið Óðinn

Varðskipið Óðinn er hluti af Víkinni - Sjóminjasafninu og um leið ein helsta sýning safnsins. Það leynist margt í varðskipi, en Óðinn var smíðaður í Álaborg í Danmörku árið 1959, 910 tonn að stærð, 63 m á lengd og 10 m á breidd. Skipið er með sérstaklega styrkt stefni og byrðing fyrir siglingar í ís. Um borð eru tvær aðalvélar sem skila 18 sjómílna ganghraða, ásamt ljósavélum. Siglinga- og fjarskiptatæki voru ætíð af bestu gerð. Dráttarspil var 20 tonna, fyrir 3 km langan dráttarvír.
Óðinn tók þátt í öllum þremur þorskastríðunum á 20. öldinni. Öflugasta vopn skipsins var 57 mm fallbyssa, staðsett á palli fyrir framan brúna. Þekktasta og árangursríkasta vopnið í þorskastríðunum var þó togvíraklippurnar, sem sjá má á afturdekki skipsins.

 

Vikin - Odinn Óðinn reyndist sérlega vel sem björgunarskip. Hann dró alls tæplega 200 skip til lands eða í landvar vegna bilana, veiðarfæra í skrúfu eða eldsvoða um borð. Einnig dró hann flutninga- og fiskiskip 14 sinnum úr strandi. Þá bjargaði skipið áhöfnum strandaðra skipa þrisvar sinnum og tvisvar bjargaði það áhöfnum sökkvandi skipa.

Óðinn sinnti almennu veiðieftirliti alla tíð og beindist það bæði að íslenskum og erlendum skipum. Fylgjast þurfti með hvar var veitt og hvernig veiðarfærin voru. Einnig var Óðinn oft kallaður til þegar ófærð var í landi og erfiðleikar við fólks- og vöruflutninga, ekki síst í afskekktustu byggðum landsins. Þyrla var oft notuð þegar mikið lá við í sjúkarflutningum.

Skipshundurinn Freyja.

 


AÐVÖRUNvarði

Þegar farið er um borð í skip sem hannað er til sérstakra starfa á sjó þarf ýmislegt að hafa í huga til að tryggja öryggi:

*  Gætið að háum þröskuldum og ójöfnum á gólfi

*  Sums staðar er lágt til lofts og hvöss horn

*  Stigar eru brattir

*  Skipið hentar ekki fólki sem fær innlokunarkennd, er lofthrætt eða hefur skerta hreyfigetu

Börn yngri en 12 ára skulu ætíð vera í fylgd með fullorðnum

Börn eru á ábyrgð forráðamanna

Yfir sumartímann er Óðinn opinn alla daga frá kl. 12:30-16:30.


Senda á Facebook