Beint á leiðarkerfi vefsins
Aftur á forsíðu vefs

Svipmyndir úr Norðursiglingum

 

Vikin - SjominjasafnidSvipmyndir úr Norðursiglingum er sýning á ljósmyndum rússneska ljósmyndarans Robert Lvovich Diament sem hann tók í Norðursiglingum Bandaríkjamanna, Breta og Rússa í seinni heimsstyrjöldinni. Í seinni heimsstyrjöldinn var Diament falið að ljósmynda Norðurflota Sovétríkjanna, starfsemi hans og Norðursiglingarnar. Hann varð síðan forstöðumaður ljósmyndadeildar flotans. Robert tók þátt í mörgum hernaðaraðgerðum Norðurflotans, um borð í kafbátum, herskipum og sprengiflugvélum.

Um 60 ljósmyndir eru á sýningunni sem veita einstaka innsýn í þennan mikla hildarleik skipalestanna, sem flestar hófu ferðir sínar eða höfðu viðkomu á Íslandi.

Robert Lvovich Diament fæddist 2. mars 1907 í Kiev, Úkraínu. Tvítugur að aldri var hann orðinn lausamaður sem ljósmyndari hjá dagblöðum í borginni.

Árið 1931 snéri Robert sér algerlega að ljósmynduninni og starfaði m.a. hjá blaðinu Fréttir frá USSR CEC. Sex árum síðar fluttist hann til Moskvu. Ljósmyndir hans birtust í hinum ýmsu dagblöðum og tímaritum og einnig tók hann reglulega þátt í ljósmyndasýningum.

Í seinni heimsstyrjöldinn var Robert falið að ljósmynda Norðurflota Sovétríkjanna, starfsemi hans og Norðursiglingarnar. Hann varð síðan forstöðumaður ljósmyndadeildar flotans.

Robert tók þátt í mörgum hernaðaraðgerðum Norðurflotans, um borð í kafbátum, herskipum og sprengiflugvélum. Hann var sæmdur fjölda heiðursmerkja fyrir framgöngu sína í stríðinu, meðal annars Rauðu stjörnunni tvisvar.

Eftir heimsstyrjöldina vann Robert fyrir nokkur tímarit. Hann tók reglulega þátt í ljósmyndasýningum víðs vegar um heim og vann til fjölda verðlauna.

Ljósmyndir hans eru enn birtar í bókum og blöðum, innanlands og utan. Þær eru einnig sýndar á stríðsminjasöfnum í Moskvu, Kiev, Pétursborg, Murmansk, Polarny, Severomorsk og Vaenga.

Sýningin verður í Hornsílinu og stendur frá 7. júlí - 30. ágúst.

Vikin - Sjominjasafnid


Senda á Facebook